Lestrarsprettur
Hvaða bekkur les mest?
Hvað á að gera?
Nemendur skólans lesa eins margar mínútur og þeir geta í þrjár vikur, bæði heima og í skóla og skrá mínútufjöldann. Nemendur fá litríka miða sem þeir festa á risastóran ís sem búið er að koma fyrir á vegg á ganginum. Miðarnir líta út fyrir að vera nammi á ísnum. Hver bekkur er með sinn lit. Sá bekkur sem les flestar mínútur vinnur keppnina og að keppni lokinni fá allir ís.