Hagnýtar upplýsingar
Opnunartími skólans
Skólinn er opinn frá 7:55 -15:30
Skrifstofa
Skrifstofa skólans er opin frá 7:40-15:15 mánudaga til fimmtudags en til 14:30 á föstudögum. Símanúmer skólans er 4116800 og netfang er hamraskoli@reykjavik.is
Nesti
Nestistími nemenda er um 10 leytið. Æskilegt að nemendur komi með hollt nesti að heiman, eins og brauð, ávexti eða grænmeti. Gott er að nemendur taki með sér vatnsbrúsa að heiman. Ekki er leyfilegt að koma með kex, sæta drykki eða sætabrauð.
Íþróttir
Nemendur sækja íþróttir í íþróttasal Hamraskóla. Sundkennsla fer fram í Sundlaug Grafarvogs og fara nemendur með rútu á milli skóla og sundlaugar. Gæta þarf þess að nemendur mæti ávallt með viðeigandi fatnað í íþróttir og sund. Ef nemandi getur ekki tekið þátt í íþrótta-eða sundkennslu til lengri tíma þarf að skila inn læknisvottorði til skólans.
Símanotkun
Hamraskóli er símalaus skóli. Ef nemendur koma með síma í skólann þá skal vera slökkt á honum og hann geymdur í skólatösku. Best er að símar séu skildir eftir heima. Í undantekningartilvikum má nota síma við nám undir leiðsögn kennara þegar við á.
Forfallatilkynningar
Foreldrar eru beðnir að hringja á skrifstofu skólans við upphaf skóladags ef um forföll er að ræða eða tilkynna þau á mentor.is. Forföll sem ekki eru tilkynnt eru skráð sem fjarvistir.
Viðmið um skólasókn
Mikil áhersla er lögð á stundvísi nemenda í skólanum. Öll börn og ungmenni á aldrinum 6 til 16 ára eru skólaskyld og bera foreldrar/forsjáraðilar ábyrgð á því að börnin innritist í grunnskóla, sæki skólann og stundi þar nám.
Ef misbrestur verður á skólasókn ber foreldrum/forsjáraðilum og skólanum að bregðast við. Til þess að þau viðbrögð verði sem árangursríkust hafa grunnskólarnir í Reykjavík sett sér samræmd viðmið og reglur sem þeir vinna eftir.