Heilsuvernd í Hamraskóla

Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foresjáraðila, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. Heilsuvernd skólabarna í Hamraskóla er á vegum Heilsugæslunnar í xxx.

 

Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, heilbrigðisfræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um heilsuvernd grunnskólabarna. Frekari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má finna á heilsuvera.is undir leitarorði „heilsuvernd grunnskólabarna“.

Teiknuð mynd af barni, kennara og foreldri sem sitja saman við borð.

Hagnýtar upplýsingar

Veikindi og slys 

Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu forsjáraðilar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna. 

Langveik börn 

Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk hjúkrunarfræðingsins í heilsuvernd skólabarna er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra/forsjáraðila og starfsfólk skólans. 

Lyfjagjafir 

Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Mikilvægt er að forsjáraðilar barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma hafi samband við hjúkrunarfræðing í skólanum.

6H Heilsunnar

Í heilbrigðisfræðslu er byggt á hugmyndafræðinni um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni Heilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. 

Áherslur fræðslunnar eru: hollusta – hvíld – hreyfing – hreinlæti – hamingja - hugrekki og kynheilbrigði. Eftir fræðslu fá foreldrar sent bréf og gefst þeim þá kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu.

Reglubundnar skoðanir og bólusetningar

1. bekkur : Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling ásamt fræðslu og viðtali um lífstíl og líðan.   

4. bekkur : Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling ásamt fræðslu og viðtali um lífstíl og líðan.

7. bekkur : Sjónpróf, hæðarmæling, þyngdarmæling ásamt fræðslu og viðtali um lífstíl og líðan. Bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta) og HPV gegn leghálskrabbameini hjá stúlkum ( 3 sprautur á 6 mánuðum)

Nemendur í öðrum árgöngum eru skoðaðir ef ástæða þykir til.

Skólaheilsugæsla fylgist einnig með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Landlæknis segja til um. Ef börn hafa ekki fengið fullnægjandi bólusetningar verður haft samband við foreldra.

Hafa samband

Hjúkrunarfræðingur:

Rósa Sólveig Steinarsdóttir

Sími 4116800

rosass@hgh.is

 

Viðvera í Hamraskóla: 

þriðjudag og miðvikudag 

kl. 8:30-12:30