Skólasetning Hamraskóla
Kæru foreldrar og nemendur.
Á mánudaginn 24. ágúst verður skólasetning í Hamraskóla. Fyrirkomulagið verður með breyttu sniði frá því sem verið hefur. Nú mæta nemendur í 2.- 7. b ásamt foreldri/foreldrum á kynningarfund með stjórnendum og umsjónarkennurum. Nemendur hvers bekkjar, ásamt foreldri/foreldrum, mæta á eftirfarandi tímum:
08.30 2. bekkur
09.15 3. bekkur
10.00 4. bekkur
10.45 5. bekkur
11.30 6. bekkur
13.00 7. bekkur
Fundirnir standa yfir í 30 – 40 mínútur og verða í matsalnum . Í lokin fara nemendur í heimsókn í heimastofur með umsjónarkennurum.
Skólabyrjun hjá nemendum í 1. bekk verður þannig að umsjónarkennarar bekkjarins boða foreldra hvers nemanda ásamt nemendum á fund á föstudag eða mánudag og munu þeir verða í sambandi við hvern og einn varðandi fundartíma.
Kl. 14.30 á mánudaginn verður svo kynningarfundur fyrir alla foreldra 1. bekkinga þar sem farið verður yfir skólastarfið og fyrirkomulag.
Við hlökkum til að sjá ykkur og hefja aftur skólastarf með okkar frábæru nemendum.
Kærar kveðjur
Anna Bergsdóttir, skólastjóri.