Skólasetning Hamraskóla

Kæru foreldrar og nemendur.

Á mánudaginn  24. ágúst verður skólasetning í Hamraskóla. Fyrirkomulagið verður með breyttu sniði frá því sem verið hefur. Nú mæta nemendur í 2.- 7. b ásamt foreldri/foreldrum á kynningarfund með stjórnendum og umsjónarkennurum.  Nemendur hvers bekkjar, ásamt foreldri/foreldrum, mæta á eftirfarandi tímum:

08.30   2. bekkur

09.15   3. bekkur

10.00   4. bekkur

10.45   5. bekkur

11.30   6. bekkur

13.00   7. bekkur

Fundirnir standa yfir í 30 – 40 mínútur og verða í matsalnum . Í lokin fara nemendur í heimsókn í heimastofur með umsjónarkennurum.

Skólabyrjun hjá nemendum í 1. bekk verður þannig að  umsjónarkennarar bekkjarins boða foreldra hvers nemanda ásamt nemendum  á fund á föstudag eða mánudag og munu þeir verða í sambandi við hvern og einn varðandi fundartíma. 

Kl. 14.30  á mánudaginn verður svo kynningarfundur fyrir alla foreldra 1. bekkinga  þar sem farið verður yfir skólastarfið og fyrirkomulag.

Við hlökkum til að sjá ykkur og hefja aftur skólastarf með okkar frábæru nemendum.

Kærar kveðjur

Anna Bergsdóttir, skólastjóri.