Risaeðluverkefni í 3. bekk
Í vetur hefur 3. bekkur unnið þemaverkefni um risaeðlur þar sem fjórar námsgreinar voru samþættar þ.e. íslenska, náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingamennt.
Unnið var með bókina Risaeðlutíminn eftir Ingibjörgu Sigurjónsdóttur ásamt ýmsum öðrum fræðibókum um risaeðlur. Í íslensku var lögð áhersla á ritun á fjölbreytilegan hátt. Í upphafi var unnið í sóknarskrift og nemendur útbjuggu fræðibók sem þeir myndskreyttu. Í framhaldinu tók við skáldskapur og nemendur lýstu sinni eigin ímynduðu risaeðlu. Hér réði ímyndunaraflið ferðinni og þurfti hvorki útlit né hæfni risaeðlunnar að eiga sér stoð í raunveruleikanum. Nemendur öfluðu sér einnig upplýsinga um eina risaeðlutegund og skrifuðu fræðitexta. Risastór veggmynd var útbúin í kjölfarið þar sem risaeðlurnar, sem skrifað var um, voru teiknaðar í stærðinni 1:16. Fylgst var með risaeðlueggi klekjast úr og dagleg framvindan skráð bæði með texta og myndatöku og að því loknu var skýrslan yfirfærð í rafbók. Farið var í útikennslu til að gera sér grein fyrir stærð risaeðlanna, stærð þeirra var borin saman við ýmislegt í umhverfinu s.s. hæð fjölbýlishúsa eða brunahana og lengd strætisvagna. Þessi samanburður var síðan útfærðu í veggspjöld.
Rúsínan í pylsuendanum var síðan kynning á verkefninu fyrir nánustu skyldmenni. Mjög góð mæting var á viðburðinn og þóttu nemendum ekkert tiltökumál að flytja textann sinn fyrir tæplega 100 manns. Þó ungir séu létu þeir fjöldann ekki slá sig út af laginu, stóðu keikir á sviðinu og komu sínu vel til skila.