Heilsugæsla í Hamraskóla
Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.
Fræðsla og forvarnir
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Öll tækifæri sem gefast eru nýtt til að fræða nemendur og vekja þau til umhugsunar og ábyrgðar á eigin heilbrigði. Foreldrar geta leitað eftir ráðgjöf skólaheilsugæslunnar varðandi andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði barna sinna.
6H Heilsunnar
Í heilbrigðisfræðslu er byggt á hugmyndafræðinni um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni Heilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar.
Áherslur fræðslunnar eru: hollusta – hvíld – hreyfing – hreinlæti – hamingja - hugrekki og kynheilbrigði. Eftir fræðslu fá foreldrar sent bréf og gefst þeim þá kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu.
Reglubundnar skoðanir og bólusetningar
1. bekkur : Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling ásamt fræðslu og viðtali um lífstíl og líðan.
4. bekkur : Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling ásamt fræðslu og viðtali um lífstíl og líðan.
7. bekkur : Sjónpróf, hæðarmæling, þyngdarmæling ásamt fræðslu og viðtali um lífstíl og líðan. Bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta) og HPV gegn leghálskrabbameini hjá stúlkum ( 3 sprautur á 6 mánuðum)
Nemendur í öðrum árgöngum eru skoðaðir ef ástæða þykir til.
Skólaheilsugæsla fylgist einnig með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Landlæknis segja til um. Ef börn hafa ekki fengið fullnægjandi bólusetningar verður haft samband við foreldra.
Hafa samband
Rósa Sólveig Steinarsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Viðvera í Hamraskóla: þriðjudag og miðvikudag kl. 8:30-12:30
Sími 4116800