Innra mat á skólastarfi í Hamraskóla

Lögð er áhersla á að allir starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar vinni markvisst innra mat sem er óaðskiljanlegur hluti af skóla- og frístundastarfi. Í því flest fagleg ígrundun og greining á gögnum til að meta gæði skólastarfs og hvort að tilætlaður árangur hafi náðst út frá fyrir fram ákveðnum viðmiðum.  

Með sjálfsmati skoða  skólar og meta eigin starfsemi, styrkleika og þætti sem hægt er að bæta. Markmið sjálfsmatsáætlunarinnar er að stuðla að stöðugri endurskoðun og þróun, þannig að námsumhverfi og kennsla verði sífellt betri og árangursríkari fyrir alla nemendur. 

Teikning af kennara að skoða skóladagatalið

Þróunarverkefni um innra mat

Hamraskóli ásamt skólum í  Austurhverfi er þátttakandi í þróunarverkefni um innra mat. Sameiginleg áætlun liggur fyrir um þá þætti sem verða teknir fyrir í innra mati næstu árin en hver skóli útfærir og aðlagar áætlunina að starfseminni.  Hamraskóli hefur fylgt áætluninni hér fyrir neðan. Búið er að meta og gera umbótaáætlanir fyrir kaflana Árangur náms,  Ábyrgð og þátttaka og  Inntak og námskrár. Kaflinn Faglegt samstarf og samræða hefur verið metinn en umbótaáætlun er í vinnslu.