Nám og kennsla

Teiknuð mynd af börnum að lesa og skrifa við borð í skólastofu.

Grunnskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá grunnskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Meginmarkmið stefnunnar er að öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.

Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag. 

Mentor

Mentor er upplýsingakerfi fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans. Forsjáraðilar og nemendur fá aðgangsorð að Mentor. Á fjölskyldusíðunni sjá forsjáraðilar stundatöflur barna sinna, heimavinnu, námsmat, skólasókn og fleira.

Kennsluáætlanir

Í kennsluáætlunum er lýst  inntaki námsins og námsmati sem gefa kennurum, nemendum og forsjáraðilum yfirsýn um það sem fengist er við í kennslunni. 

Námsmat

Í Hamraskóla vinnum við með hæfniviðmið aðalnámskrár sem sett eru fram í hverri námsgrein og metum þau. 

Kennsluhættir

Í Hamraskóla leggjum við áherslu á leiðsagnarnám sem byggir á rannsóknum um árangursríkar aðferðir varðandi nám og kennslu. Við tengjum vaxandi hugarfar (growth mindset)  inn í kennsluna með markvissri hvatningu og endurgjöf.  Nemendur eru hvattir til að taka áskorunum og sýna þrautseigju í námi.